top of page
Velkomin á heimasíðu kvenfélagsins Líkn

​Kvenfélagið Líkn er félag í Vestmannaeyjum sem var stofnað árið 1909. Aðal markmið félagsins frá byrjun hefur verið að styðja sjúka í Vestmannaeyjum og Sjúkrahús Vestmannaeyja, síðar Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Frá miðri síðustu öld hefur félagið gefið til sjúkrahússins nánast á hverju ári og er heildarverðmæti gjafanna varlega áætlað nokkur hundruð milljónir króna. Það liggur við að annar hver hlutur Ã¡ Heilbrigðisstofnuninni sé merktur sem gjöf frá Líkn og lýsir það mjög vel hvað félagið hefur þýtt fyrir stofnunina í gegnum árin, enda er Heilbrigðisstofnunin eitt best búna sjúkrahúsið á landsbyggðinni. Auk sjúkrahússins hefur félagið styrkt Hraunbúðir (dvalarheimili aldraðra), barnaheimilin, kirkjuna, íþróttamiðstöðina, ásamt fjölda einstaklinga og heimila í bænum.

bottom of page